
Bragginn í Garði
Opið frá kl. 13:00 - 17:00 laugardag og sunnudag
Skagabraut 17, Garði í Suðurnesjabæ.
Einkasafn Ásgeirs M. Hjálmarssonar í Garði í gömlum bragga sem var áður þurrkhús, þar sem þurrkaður var saltfiskur til útflutnings.
Á safninu er fjölbreytt úrval muna sem Ásgeir hefur safnað í gegnum árin, ásamt vel upp gerðum bílum og vélum.
Þetta er safn sem kemur á óvart og vekur forvitni og segir sögur.

Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni. Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17.

Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17. Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni.



