
Kristinsson handmade
Opið frá kl. 13:00 - 17:00 föstudag, laugardag og sunnudag. Stamphólsvegur 4, 240 Grindavík
Kristinsson handmade verður með opið frá kl: 13:00 - 17:00 föstudag, laugardag og sunnudag yfir Safnahelgi á Suðurnesjum.
Kristinsson hefur frá unga aldri haft ástríðu fyrir smíðum og fallegu handverki. Í mörg ár hefur Kristinsson smíðað sér til ánægju og gefið heimilum sjarma af vönduðum innréttingum og húsgögnum úr gegnheilum viði af nátturinnar hendi. Kristinsson segir "Það sem gerir list fallega er fyrst og fremst falleg hugmynd og heiðarleiki". Kristinsson hefur náttúruna að fyrirmynd í verki því í henni eru ekki gerðar málamiðlanir og ekki hjá Kristinsson heldur.

Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni. Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17.

Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17. Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni.



