
Ljóðastund
Laugardaginn 11. október kl. 14:00
Laugardaginn 11. október milli kl. 14.00 og 14.30 mun Gunnhildur Þórðardóttir ljóðskáld flytja ljóð um haustið og veturinn fram undan og spjallar við gesti milli ljóða.
Viðburðurinn fer fram í Aðalsafni og áhugasömum safngestum býðst tækifæri til að spyrja út í ljóðin og eiga samtal við skáldið.
Viðburðurinn eru ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17. Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni.