Vélar gangsettar úr vélasafni Guðna Ingimundarsonar

Opið kl. 16:00 - 16:30 laugardag og sunnudag
Skagabraut 100, Garði í Suðurnesjabæ.

Tvær af vélum úr vélasafni Guðna Ingimundarsonar frá Garðstöðum, verða gangsettar laugardaginn 11. október kl. 16 -16:30 og sunnudaginn 12. október kl.16 til 16:30. Það eru Red Wing Thorobred KK frá 1948 og Norman T300 frá 1945. 

Á vélasýningunni eru um 50 vélar frá því um 1920 fram að 1970 sem segja merkilega sögu þróunar véla og notkunar. GMC Trukkurinn hans Guðna er líka til sýnis.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 8. október 2025
Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni. Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 8. október 2025
Í sumar var formlega opnuð sýningin Leiðarljós að lífhöfn í Vélarhúsi vitans, sem ennþá er nýtt til að knýja ljósavélar ef rafmagn fer af vitanum. Sýningin, sem er á vegum Hollvinasamtaka Reykjanesvita, fjallar um sjóslys og afleiðingar þeirra ásamt sögu Reykjanesvita og uppbyggingar á vitakerfi landsins. Saga sjóslysa á ríkt erindi til nútímans, landsmönnum er skylt að minnast þeirra miklu fórna sem sjómenn og fjölskyldur þeirra færðu til að efla byggðir landsins. Auk sýningarinnar var einnig opnuð Gestastofa og kaffihús í sumar í fyrrum íbúðarhúsi vitavarða, þar sem hluta sýningarinnar er að finna. Gestastofan er opin daglega frá 10 - 17. Á safnahelginni verður boðið upp á leiðsögn sýningarstjóra, Eiríks P. Jörundssonar, um sýninguna og hefst leiðsögnin laugardag og sunnudag kl. 13.30 í Gestastofunni.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 8. október 2025
Opið frá kl. 12:00-17:00 laugardag og sunnudag. Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir 8. október 2025
Opið frá 12:00 - 17:00 laugardag og sunnudag. Gula húsinu, Austurvegi 1-3, 240 Grindavík
Fleiri viðburðir