
Hvers vegna fornbílar?
Laugardagur 17. október kl. 13:00
Hvað er það við gamla bíla sem heillar svo marga? Er það hönnunin, handverkið, minningarnar - eða einfaldlega tilfinningin sem fylgir því að setjast undir stýri á bíl með sögu?
Rúnar Sigurjónsson, formaður Fornbílaklúbbs Íslands, veltir fyrir sér spurningunni „Hvers vegna fornbílar?“ í fróðlegu og skemmtilegu erindi í Duus safnahúsum.
Erindið fer fram á sýningunni Litið í baksýnisspegilinn, þar sem rifjuð eru upp skemmtileg augnablik úr bílasögu Suðurnesja og staldrað við nokkrar af helstu vörðum bílvæðingarinnar á svæðinu. Ljósmyndir úr safneign Byggðasafns Reykjanesbæjar segja þar sögu mikilla breytinga – allt frá fyrstu bílferðinni frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913 til þess tíma þegar bíllinn varð órjúfanlegur hluti af daglegu lífi.
Með betri vegum og sífellt fleiri bílum breyttust ekki aðeins ferðalög fólks heldur einnig atvinnulíf, vöruflutningar og samfélagið sjálft.
Verið öll velkomin – og að sjálfsögðu verður boðið upp á kaffi og kleinur.
Aðgangur er ókeypis að Duus safnahúsum á Safnahelgi á Suðurnesjum, 17. og 18. október 2026.





