Nína, okkar kærasta Nína

Opið frá 12:00 - 18:00 laugardag og sunnudag.

Listasafn Reykjanesbæjar, Duusgata 2 - 8, 230 Reykjanesbær.

Sýningin Nína, okkar kærasta Nína varpar nýju ljósi á líf, verk og arfleifð Nínu Sæmundsson (1892–1965), eins merkasta frumkvöðuls íslenskrar höggmyndalistar. Nína lifði og starfaði stóran hluta ævi sinnar erlendis, frá Kaupmannahöfn og París til Bandaríkjanna, þar sem hún byggði upp farsælan feril sem myndhöggvari. Saga hennar hefur lengi verið sögð sem saga íslensku sveitastúlkunnar sem hélt út í heim og öðlaðist frægð, en í sýningunni er sjónum beint að öðrum hliðum á lífi hennar, verkum og tengslum.


Sýningin nálgast Nínu út frá hinsegin sjónarhorni og setur verk hennar í samtal við ný verk eftir Diljá Þorvaldsdóttur, Jo Pawlowska, Olgu Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens. Listafólkið tekur verk Nínu sem útgangspunkt og opnar þau fyrir nýjum túlkunum þar sem meðal annars er fjallað um valfjölskyldur, nánd og umhyggju, sjálfsmynd, bernsku, náttúru og umbreytingu.


Í gegnum þetta samtal kynslóða birtist Nína ekki aðeins sem söguleg persóna heldur sem listakona sem heldur áfram að kalla fram nýjar spurningar. Sýningin býður þannig upp á endurskoðun stöðu hennar í íslenskri listasögu og dregur fram mikilvægi hennar hinsegin listasögu Íslands.


Listafólk: Nína Sæmundsson, Diljá Þorvaldsdóttir, Jo Pawlowska, Olga Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens


Sýningarstýrur: Viktoría Guðnadóttir og Dr. Ynda Eldborg


Sýningin opnar á Ljósanótt, 3. september kl. 18:00, í Listasafni Reykjanesbæjar og stendur til 29. nóvember 2026.


Sýningin er styrkt af Safnasjóði, Myndlistarsjóði og Kvikmyndasafni Íslands.

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 13. október 2026
Laugardagur og sunnudagur kl. 12:00 - 16:00 Duus safnahús, Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 13. október 2026
Opið Sunnudaginn 18. október frá kl. 11-17. Hvalsnes við Stafnesveg, Sandgerði í Suðurnesjabæ. 
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 8. október 2026
Sunnudaginn 18. okt. kl. 14:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 7. október 2026
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 12:00-17:00. Skagabraut 100, Garði í Suðurnesjabæ
Fleiri viðburðir