Sögurnar á bak við verkin

Sunnudagur 18. október kl. 14:00

Nína, okkar kærasta Nína. Sögurnar á bak við verkin


Hvaða sögur leynast á bak við listaverkin?


Verið hjartanlega velkomin í Listasafn Reykjanesbæjar þar sem við fáum einstakt tækifæri til að kynnast verkum Nínu Sæmundsson í gegnum sögur þeirra sem eiga þau.


Ynda Eldborg, sýningarstýra, og Helga Þórsdóttir, safnstjóri, munu spjalla við eigendur verka sem nú eru til sýnis á sýningunni Nína, okkar kærasta Nína.

Í samtalinu fáum við að fræðast um tilurð verkanna, uppruna þeirra og hvernig þau hafa ratað í hendur núverandi eigenda. Hér gefst einstakt tækifæri til að heyra persónulegar frásagnir og öðlast nýja sýn á verk og arfleifð þessarar merku listakonu.


📅 Sunnudaginn 18. október

🕑 Kl. 14:00

📍 Listasafn Reykjanesbæjar



Við bjóðum öll hjartanlega velkomin til notalegrar og fróðlegrar stundar í safninu.

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 14. október 2026
Laugardagur 17. október kl. 13:00
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 13. október 2026
Opið frá 12:00 - 18:00 laugardag og sunnudag. Listasafn Reykjanesbæjar, Duusgata 2 - 8, 230 Reykjanesbær. 
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 13. október 2026
Laugardagur og sunnudagur kl. 12:00 - 16:00 Duus safnahús, Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 13. október 2026
Opið Sunnudaginn 18. október frá kl. 11-17. Hvalsnes við Stafnesveg, Sandgerði í Suðurnesjabæ. 
Fleiri viðburðir