
Bókakviss
Föstudagur 16. október kl. 20:00
Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbær
Ertu bessivisser, víðlesinn bókaunnandi eða langar bara í skemmtilegt skemmtikvöld? Þá er þetta kvissið fyrir þig!
Við ætlum að kanna hversu vel þið þekkið fólkið sem hefur lifað, elskað, logið, leyst morðgátur, hefnt sín og tekið misgóðar ákvarðanir á síðum bókmenntanna.
Við förum alla leið frá vígamönnum Íslendingasagnanna yfir í snjalla spæjara, stormasama elskhuga og eftirminnilegar persónur úr nútímabókmenntum.
Þema: Aðalpersónur bókmenntanna
Tveir saman í liði
Stapasafn
Kl. 20:00
Vegleg verðlaun fyrir efstu þrjú liðin (nánar auglýst síðar)
Bónusspurning í lokin gæti breytt öllu!
Sjáumst á kvissinu!





