
Ganga að Prestsvörðunni í Leiru
Sunnudaginn 18. okt. kl. 14:00
Sunnudaginn 18. okt. kl. 14:00 verður gengið eftir nýlögðum stíg að Prestsvörðunni sem er í holtinu fyrir ofan golfvöll GS í Leiru.
Prestsvarðan er mjög merkilegur minnisvarði um hrakninga sem sr. Sigurður Brynjólfsson Sívertsen (1808 – 1887) lenti í en bjargaðist úr fyrir kraftaverk. Sr. Sigurður var prestur Útskálaprestakalls í 50 ár á þarsíðustu öld og var einn af „höfuðsmönnum 19. aldarinnar með þjóð vorri“ eins og segir í bók Gunnars M. Magnúss, Undir Garðskagavita. Þær Kristjana Kjartansdóttir og Helga Ingimundardóttir munu fræða göngufólk um Prestsvörðuna og hinn dáða og merkilega sr. Sigurð Br. Sívertsen.
Gegnið er eftir nýlögðum göngustíg frá bílastæðinu við golfskálann í Leiru. Frekar létt og stutt ganga.
Hægt að leggja bílum við golfskálann.
Gott að klæða sig eftir veðri.





