Heimildamynd um Tyrkjaránið í Grindavík

Opið frá 13:00 - 16:00 laugardag og sunnudag.

Kvikan, Hafnargötu 12a, 240 Grindavík.

Minja- og sögufélag Grindavíkur frumsýnir heimildamynd um Tyrkjaránið í Grindavík árið 1627 eftir Adam Nichols og Karl Smára Hreinsson.

 

Í myndinni er saga þessa örlagaríka atburðar rakin, þegar sjóræningjar frá Salé í Marokkó komu að Grindavík og rændu fólki og verðmætum. Árásin á Grindavík var upphaf Tyrkjaránsins á Íslandi árið 1627. Adam og Karl Smári hafa um árabil rannsakað Tyrkjaránið og gefið út fjölmargar bækur um atburðina.

 

Myndin er um 20 mínútur að lengd og verður sýnd á hálftíma fresti í Kvikunni milli kl. 13:00 og 16:00 laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október.

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 2. október 2026
Sunnudagur 18. október kl. 13:00 Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 2. október 2026
Laugardagur 17. október kl. 13:00 - 16:30 Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2 , 260 Reykjanesbær
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 2. október 2026
Opið frá kl. 10:00 - 16:00 laugardag og sunnudag. Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 2. október 2026
Föstudagur 16. október kl. 20:00 Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbær
Fleiri viðburðir