Ratleikur um Vogana

Alla helgina.

Arahóll.

Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar í samstarfi við félagsmiðstöðina Boruna verður með ratleik í Vogum á safnahelgi. Hægt verður að njóta alla helgina.

Ratleikurinn byrjar á Arahól og leiðir svo hver staður til þess næsta. Kort sem sýnir staðsetningar má nálgast í Íþróttamiðstöðinni í Vogum.

Fimm staði þarf að heimsækja í ratleiknum og leysa þar litla þraut. Þrautirnar gefa bókstafi sem raða þarf saman. Útkoman er orð sem tengist Vogum – verðlaun verða í boði fyrir þrjá fyrstu á laugardeginum.


Vinninga má nálgast í Borunni til kl. 15 á laugardeginum.

Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 1. október 2026
Opið frá kl. 13:00 - 16:00 laugardag og sunnudag. Vatnsleysuströnd.
Eftir Ellen Agata Jónsdóttir • 25. september 2025
Skólaminjasafnið í Norðurkoti verður opið laugardag og sunnudag kl. 13 til 16. Lögð er áhersla á upplifun barna og fræðslu til þeirra. Ýmiskonar fróðleikur og skemmtilegir leikir fyrir fjölskylduna að sameinast í. Í Norðurkoti eru allskonar gömul leikföng, skóladót og annað sem gleður augað. Ratleikir í boði fyrir þá allra áhugasömustu. Tilvalin fjölskyldusamvera.  Norðurkot er staðsett á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd.
24. september 2024
Opið frá kl. 10:00-17:00 alla daga. Svartihellir, við smábátahöfnina í Gróf, 230 Reykjanesbær